NEWS

05. október 2009
 As Iceland "celebrates" its first anniversary of THE BIG CRASH, HH opens an art exhibition titled "The Icelandic Expansion 2009" - a sarcastic title, since "The Icelandic Expansion" (Icelandic business-viking-raids on foreign shores) came to a shrieking halt one year ago. The show features a series of photographs shot last January in an unnamed country in southern Africa, showing a once invincible, now desperate Icelandic "business-viking" wandering around the poor third world suburbs, sleeping on the beach and begging in the street. Show is at The Contemporary Art Gallery, Skólavörðustígur 3, 101 Reykjavik, 7-20 October 2009.
01. október 2009
HH was invited to be among the speakers at the opening ceremony of the art festival in Bergen Norway last May, a black tie event held at the big and festive Grieghallen, with the king and queen of Norway up front. HH's speech focused on the current crisis in Iceland and the relations between the two countries. It was recorded by Norwegian Televison, NRK, and is now available on youtube.com.

ART

PAINTINGS:
1983-1996

PAINTINGS:
1997-2003

2000 2001 2002
2003 2004 2005
2006 2007

Forsíða

18. janúar 2010 | 09:52
Grein nr. 1000 um Icesave
 Kæru landsmenn. Í dag er dagur nr. 462 í Icesave. Og hér kemur grein nr. 1000 um málið. Þið fyrirgefið.
Eitt sinn vorum við þjóð í sjokki sem skammaðist sín fyrir græðgi sinna drengja og samþykkti hvað sem var. Kannski ekki alveg eins og dýrið í bílljósunum heldur meira eins og dýralæknir í bílljósum. Síðan vorum við þjóð að koma út úr sjokki sem ætlaði að vera dugleg stelpa og sýna heiminum að hún vildi bæta sitt ráð. Eins og nýkjörinn formaður húsfélags sem lofar að deila dópskuld pakksins á fjórðu á allar hæðir, af (kannski aðeins of mikilli) stórmennsku og heiðarleika. Nú erum við þjóð sem þreytt er orðin á sjokki og veit ekkert í sinn haus. Stöndum ráðvillt úti á túni og hlýðum á vegfarendur segja hvað okkur ber og ekki. Skoðanakannanir orðnar að skrattaskemmtun.

31. janúar 2009 | 13:58
Bæ bæ, gamla Ísland!
 Byltingin er hafin en ekki afstaðin - Fréttablaðið 31. jan. 2009

08. desember 2008 | 11:09
Brennandi brunabíll
  Grein birt í Féttablaðinu, sunnudaginn 7. desember

1. "Vík burt ríkisstjórn! "

Fyrir mánuði mætti ég í laugardagsmótmælin í fyrsta sinn. Við gengum frá Hlemmi niður á Austurvöll. Sturla Jónsson fór fyrir göngunni á vörubíl og Snorri Ásmundsson hrópaði í gjallarhorn af palli hans: “Vík burt ríkisstjórn! Vík burt ríkisstjórn!” Margir tóku undir. En ekki allir. Þar á meðal ég. Ég fann mig ekki í þessu ákalli. Ekki þá. Mitt fólk var í stjórn og stjórnin var í “björgunarstörfunum miðjum”. Maður vildi gefa þeim séns. Á móti reyndi ég að fá fólkið til að hrópa: “Kjósa! Kjósa!”

08. desember 2008 | 11:05
Ábyrgð Samfylkingar

20. nóv. 2008

Með hverjum deginum sem líður síast inn sú furða og sú staðreynd að hér hefur land verið sett á hvolf og enn hefur ekki nokkur maður sagt af sér.

Þeir sem blésu upp þá bankabólu sem sprakk svo illa framan í þjóðina eru reyndar flestir flúnir ofan í sínar vel fóðruðu matarholur en þeir og þau sem áttu að hemja vandann sitja enn.


 



30. nóvember 2008 | 14:13
Grýla
 Kvæði samið fyrir jólaóróa Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
og flutt á Austurvelli 30. nóv. 2008

Grýla bíður bakvið horn
á brókarsíðum frakka.
Hún er gömul galdranorn
sem gleypir vonda krakka.

Gnístir saman tönnum tveim,
með tungulöngu slefi
vætir hár á vörtum þeim
sem vaxa á hennar nefi.



BOOKS

Hella
Þetta er allt að koma
101 Reykjavík

Ljóðmæli
Skáldanótt
Höfundur Íslands

Rómeó og Júlía
Hr. Alheimur
Rokland

Best of Grim


The Kodak Moments




The Boston Papers