NEWS
As Iceland "celebrates" its first anniversary of THE BIG CRASH, HH opens an art exhibition titled "The Icelandic Expansion 2009" - a sarcastic title, since "The Icelandic Expansion" (Icelandic business-viking-raids on foreign shores) came to a shrieking halt one year ago. The show features a series of photographs shot last January in an unnamed country in southern Africa, showing a once invincible, now desperate Icelandic "business-viking" wandering around the poor third world suburbs, sleeping on the beach and begging in the street. Show is at The Contemporary Art Gallery, Skólavörðustígur 3, 101 Reykjavik, 7-20 October 2009.
HH was invited to be among the speakers at the opening ceremony of the art festival in Bergen Norway last May, a black tie event held at the big and festive Grieghallen, with the king and queen of Norway up front. HH's speech focused on the current crisis in Iceland and the relations between the two countries. It was recorded by Norwegian Televison, NRK, and is now available on youtube.com.
ART
12. apríl 2001 | 00:00
Guðni Ágústsson sagði í Kastljósi að hann hefði kynnst grænmeti seint á ævinni. Hann var orðinn sautján ára þegar hann sá rauða papriku í fyrsta sinn. Hann varð strax mjög hrifinn. Það var í KÁ á Selfossi. Hann keypti eina og gaf mömmu sinni í afmælisgjöf. Það urðu allir voða hissa þegar nýja fína styttan í gluggakistunni fór að skreppa saman og mygla eftir nokkra daga. Þetta sem var svo glansandi fínt í búðinni og hafði kostað 2.700 krónur. Þegar Guðni sá þetta sagði hann strax: "Abbababb, bíðiði nú við…" Fjölskyldunni fannst hann komast vel að orði og þarna fóru menn fyrst að segja Guðna að hann ætti kannski að fara útí pólitík.
Nú eru í undirbúningi í Landbúnaðarráðuneytinu svokallaðir neyslustyrkir. Hér er um að ræða tilraunaverkefni sem ráðherra hefur sjálfur nefnt "Það borgar sig að borða". 60 fjölskyldur munu taka þátt í verkefninu sem er ætlað að koma til mótvægis við andstöðu neytenda við framleiðslustyrki og verndartolla. Hver fjölskylda fær 16.000 króna styrk á mánuði til kaupa á grænmeti.
Á blaðamannafundi til kynningar á verkefninu sagði Landbúnaðarráðherra meðal annars: "Íslendingar eru hraust og fallegt fólk vegna þess að þeir borða mikinn fisk… og fiskurinn…borðar mikið grænmeti, en með þessari áætlun ætlum við að stytta leiðina "Úr haga í maga", sleppa þeirri krókaleið sem ég kýs að kalla "Úr sjó í þjó"…" Á Íslandi er mikið rok. Hér er ekki hægt að rækta neitt nema í skjóli. Þess vegna verða verndartollarnir að vera mjög háir. Íslenskir grænmetisbændur eru mjög nauðsynlegir. Eða hverjir aðrir eiga þá að halda uppi verðinu í þessu landi?
Staðreyndin er bara sú að Íslendingar vilja helst ekki borða ódýran mat. Ekki frekar en þeir vilji borða ósoðinn mat. Samt hefur nú heyrst að nokkrir garðyrkjubændur hyggist söðla um og láta af garðyrkju í ljósi neikvæðrar umfjöllunar síðustu daga. Þeir hyggjast þess í stað einbeita sér alfarið að rányrkju. Guðni Ágústsson kemst oft vel að orði. Hann er svo vel varaformaður. Það eru einmitt svona varir sem maður gæti hugsað sér að Keikó sé hrifinn af. Maður hefur samt áhyggjur af því að Guðni ætli að kyssa Keikó, af því hann er búinn að kyssa íslensku kúna. En kannski smitast gin- og klaufaveiki ekki með kossum. Mér finnst samt fallegt til þess að hugsa að landbúnaðarráðherra vilji kyssa dýrin. Það gæti líka orðið ágæt aukabúgrein, það er að segja ef ráðherrann væri til í að kyssa fleiri tegundir en kýr og hval. Ég er viss um að "kysstur hákarl" myndi slá í gegn. Allavega ef hann er kysstur af ráðherra. Mér finnst að fleiri ráðherrar ættu að kyssa það sem heyrir undir þá.
Sif mætti kyssa íslensku rjúpuna. Páll Pétursson ætti að kyssa íslenska nýbúann. Sólveig Pétursdóttir ætti að kyssa íslenska fangann, venja undir hann kvenmann og segja svo við hann "farvel Frans". Þá mætti fylla Litla Hraun af pappaföngum. Það góða við pappafanga er það að þeir brjóta ekki af sér þegar þeir koma aftur út. Þeir eru bara brotnir saman. Þetta myndi spara pappírskostnað hjá lögreglunni vegna þess að ekki þarf eins margar pappalöggur til að hafa eftirlit með pappakrimmum eins og með alvöru krimmum. Jóhannes Gunnarsson formaður neytendasamtakanna er æðislegur. Hann lítur út fyrir að vera algjör neytandi. Hann lítur út fyrir að vera í botnlausri neyslu. Það er eins og hann verði að smakka allar vafasömustu vörur landsins. Þetta er örugglega erfitt starf. Það er eins og hann sé stöðugt þjakaður af kamfýlóbakter og salmonellu. Kannski þess vegna sem hann er alltaf svona neikvæður. Ég hélt alltaf að það væri prentvilla hjá starfsmönnum sjónvarps að skrifa neitendasamtökin með ufsiloni.
Árni Johnsen vill láta lýsa Hellisheiðina. Af því hann kemur stundum keyrandi frá Þorlákshöfn seint á kvöldin. Það mætti samt alveg segja honum að það sé styttra að fara Þrengslin. Það var Eggert Haukdal sem upphaflega átti hugmyndina að því að lýsa Hellisheiðina. Það mætti kannski splæsa lýsingu á Eggert í leiðinni. Það myndi örugglega ekki draga úr ferðamannastraumi á Njáluslóðir að bæta þar við einni mannlýsingu. Mér finnst að Jón Steinar Gunnlaugsson ætti að bjóða Illuga Jökulssyni með sér í siglingu um Karabíska hafið. Þá myndum við vera laus við þá í nokkrar vikur og svo myndu þeir líka kannski fara á trúnó inní káetu sem gæti kannski endað með því að Jón Steinar myndi lána Illuga gemsann sinn svo hann gæti bara hringt í Sigga Svarta og talað út um öll þessi mál í eitt skipti fyrir öll. Á bakaleiðinni gæti svo Jón Steinar kannski dressað Illuga upp í fríhöfninni í Orlando. Alveg er ég viss um að Oddur Þórisson á Skjá einum yrði því feginn.
Við erum allavega öll dauðslifandi fegin því að Davíð hafi ákveðið að leggja niður Þjóðhagsstofnun. Hver þarf svoleiðis apparat á góðæristímum? Hún var orðin eins og Veðurstofan á Kanarí. Algjörlega óþörf. Davíð gekk samt kannski full langt þegar hann hitti Jaques Chirac og Frakklandsforseti fór að býsnast yfir Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna og sagði að það kæmi ekki annað til greina en að Ísland tæki þar sæti. Davíð tók undir það: "Yes, if it will be a problem, I will just put it down."