NEWS
HH was among the writers taking part in the Festival of the European Short Story in Croatia 3-8 June 2007. Not being a known for short stories, HH however whipped one out especially for the festival that was organized by the great Roman Simic and included readings and discussions in Zagreb and Split, the great Adriatic seaport.
Hallgrimur has a new publisher in Denmark. He has left Rosinante and signed with Aschehoug. Rosinante published two of his novels, "101 Reykjavik" in 2000 and "Islands forfatter" in 2006. Aschehoug will start with "Stormland" in September 2007
ART
11. maí 2007 | 11:54
Davíð Geir Ásgrímsson Haarde
Björn Bjarnason kveður með stæl: Auglýsir stöðu vararíkislögreglustjóra í jakkavasa sínum og er svo hissa að aðeins einn sæki um, sonur ritara hans. Og svo ætlaði ráðherrann að verðlauna duglegasta liðsforingjann í stríðinu gegn Baugi með embætti Ríkissaksóknara en fékk þá óvænt símtal frá formanninum:
“Rólegur. Það er kosið eftir viku.”
Þessar fréttir minntu á þá staðreynd að Björn Bjarnason er enn ráðherra. Maður var eiginlega búinn að gleyma því. Og þetta varð líka til að rifja upp “gömlu stjórnina”, stjórn Davíðs og Dóra. En Björn Bjarnason er helsti fulltrúi þessa tímabils valdníðslu og geðþótta sem enn situr við völd, gamall klíkukóngur sem er í jafn miklum tengslum við nútímann og uppáhalds auglýsingamiðillinn hans.
Það vill hinsvegar gleymast að “gamla stjórnin” situr enn þótt skipt hafi verið um forsætisráðherra nokkrum sinnum. Það er engu líkara en einungis verið sé að kjósa um síðasta árið í stað þeirra fjögurra sem kjörtímabilið telur.
Rétt til að minna á: Síðustu Alþingiskosningar fóru fram vorið 2003. Kjörtímabilið telur fjögur ár og þegar störf ríkisstjórnar eru vegin og metin skal horfa á allan þann tíma.
Minni fjölmiðla og kjósenda virðist hinsvegar ekki ná lengra aftur en til 16. júní 2006, þegar Geir Haarde gekk inn í stjórnarráðið. Í kosningabaráttunni hefur hann alveg sloppið við að svara fyrir syndir forvera sinna. (Af sumum er hann reyndar ekki saklaus, eins og ráðningu hægri handar ríkisstjórnarinnar í hæstarétt.) En því ætti að hlífa Geir við vondu málunum? Sat hann ekki í stjórn þá líka? Var hann ekki varaformaður flokksins sem reyndi að setja lög á alla fjölmiðla nema Moggann? Samþykkti hann ekki að draga frumvarpið til baka eftir málskot forseta í stað þess að færa það til þjóðaratkvæðagreiðslu eins og stjórnarskrá býður? Og hvernig er það: Sat hann ekki sáttur undir aðild okkar að Íraksstríðinu?
Ríkisstjórn Geir Haarde er sú sama og ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og ríkisstjórn Halldórs Ásgrímssonar. Gleymum því ekki í kjörklefanum.