NEWS
The photographic exhibition "What I've always wanted to ask myself" by radio journalist Tobias Wenzel and photographer Carolin Seeliger was featured at this year's Frankfurt Book Fair. Over 70 international writers were asked to ask themselves a question and answer it. HH's contribution can be seen here and here
On October 4th Stormland (Rokland) was published by Aschehoug in Denmark. Three reviews have already appeared. "Hallgrimur Helgason skriver röven ud af bukserne på al anden nordisk samtidslitteratur med romanen om den frustrerede idealist og kulutrpessimist Böddi. Læs ham!" says Berlingske Tidende, giving the book 6 stars. "Rasende, og rasende morsom" says Jyllandsposten and gives it 5 stars. The business minded Börsen also gives it 5 stars.
ART
17. apríl 2008 | 16:09
Ógönguráðherrar
Með reglulegu millibili erum við minnt á hve brýnt er að landið verði eitt kjördæmi.
Í febrúar birtist lítil frétt sem bar í sér stærra hneyksli þótt hvorugt færi hátt. Í byrjun árs 2006 seldi fyrrverandi samgönguráðherra gömlu Breiðafjarðarferjuna án auglýsingar á 37.8 milljónir til einkafyrirtækis. Tveimur vikum síðar seldi fyrirtækið ferjuna til finnskra aðila fyrir 100 milljónir. Mismunurinn var litlar 62.2 milljónir. Ekki kom á óvart að fyrirtækið sem á svindlinu græddi er staðsett í heimabæ ráðherrans. Það fylgdi jafnvel sögunni að forstjórinn hafði setið með honum í bæjarstjórn. Hér virtist því um dæmigerða klíkubræðraaðgerð að ræða. Kjördæmisherranum tókst að pota nokkrum milljónatugum heim í hérað. Einhverstaðar hefði orðið úr lögreglumál en ekki á Íslandi. Ráðherrann fyrrverandi gegnir nú einu æðsta embætti landsins, er forseti Alþingis.
Ráðherratíð hans lumar á fleiri sóunarmálum sem reika enn um fréttasíður. Í gær fór “nýja” Grímseyjarferjan í jómfrúarsiglingu sína, þremur árum og hundruðum milljóna eftir að hún var keypt. Og á dögunum birtust fréttir af því að tékkneskir bormenn sæu til sólar út úr fjalli við Héðinsfjörð. Á meðan hefur Sundabraut breyst í Syndabraut, þar sem hún liggur enn óteiknuð á kannski-borðinu, og nær daglega slasast vegfarendur á þrengslavegum suð-vestur-hornsins, á meðan fjölskyldufeður aka skjálfandi norður heiðar, af ótta við flutningaferlíkin sem mæta þeim á korters fresti og voru hannaðir fyrir Evrópskar hraðbrautir en ekki íslenska sveitavegi. En vegna stefnu fyrrverandi og núverandi ógönguráðherra sigla strandferðarskipin nú yfir Holtavörðuheiði með mjöl og sement. Af sjávarsöknuði hefur þeim tekist að breyta þjóðveginum í öldótt haf.
Í gær bættist enn einn krossinn í safnið við Kögunarhól. Bílstjóri sendibíls lést á veginum milli Selfoss og Hveragerðis eftir að pallbíll hafði rekist utan í flutningabíl og lent síðan framan á bifreið hans. Á síðustu fimm árum hafa 40 manns slasast á þessum vegarkafla. Í fyrra létust þar tveir.
Fyrir ári settist nýr maður í samgöngustólinn. Dugmikill norðanmaður tók við af ferjukaupmanninum úr Stykkishólmi. En sá nýji notar stefnu þess fyrri. Sundabraut er áfram Syndabraut, Reykjanesbrautin enn hálfköruð (þremur árum eftir að tvöföldun hennar hófst) og tvöföldun á Hellisheiði er aðeins áætluð á þeim kafla sem skástur er, en ekki á fyrrnefndum dauðakafla. Hinsvegar gengur vinna við Héðinsfjarðargöng samkvæmt áætlun og gulltryggt er að Vaðlaheiðargöng verði tilbúin áður en Sundabraut kemst af kannski-borðinu. Og nú er jafnvel farið að tala um ný og breiðari Ólafsfjarðargöng.... Það eina sem nýji ráðherrann hefur gert fyrir íbúa höfuðborgarinnar er að lofa þeim nýrri flugstöð á Reykjavíkurflugvelli, þeirri sem forveri hans lét sig dreyma um og báðir kalla “samgöngumiðstöð”. Kannski er henni ætlað að binda endanlegan hnút á samgöngur í Reykjavík. Í ráðuneyti ógöngumála hefur ekkert breyst nema hvað milljónapumpan hefur verið færð úr Breiðarfirði yfir í Eyjafjörð, í kjördæmi núverandi ráðherra. Lengi lifi kjördæmapotið.
Í vikunni varð enn eitt bílslysið á ófrágengnum hluta Reykjanesbrautar. Þekkt andlit lenti á gjörgæslu og fólk átti því auðveldara með að finna til með þessu síðasta fórnarlambi stefnunnar í ógöngumálum. Kastljósið beindist enn og aftur að stuttum vegarkafla sem undanfarin misseri hefur slasað fleira fólk en afgangurinn af leiðinni. Verktaki fór á hausinn og skildi veginn eftir úti í hrauni. Og þar hefur hann verið síðan þá, í heila fjóra mánuði. Vegagerðin og ráðherra bera fyrir sig flóknar reglur. Er sú afsökun gild? Samkvæmt áliti lögfróðra er hún líka úti í hrauni. Menn hefðu getað ráðið nýjan verktaka á staðnum. Erfitt er að ímynda sér að millilandaþotum væri gert að lenda á bráðabirgðabraut útí hrauni mánuðum saman ef breikkun flugbrautar hefði óvart stöðvast. Seint yrði líka látið viðgangast að vinna við gælugöngin nyrðra lægi niðri sökum vanefnda verktaka.
Um Reykjanesbraut fara 15.000 bílar á dag. Um Héðinsfjarðargöng er gert ráð fyrir 350 bílum á dag. Í þeim fyrrnefndu sitja kjósendur forsætis-, fjármála-, menntamála-, umhverfis-, utanríkis-, félagsmála-, iðnaðar-, dómsmála- og heilbrigðisráðherra en síðarnefndu bílunum aka kjósendur samgönguráðherra.
Þetta er ekki lengur bara spurning um gamaldags kjördæmapot. Núgildandi ógöngustefna er lífshættuleg. Hún meiðir fólk á hverjum degi.
Kristján L. Möller og Sturla Böðvarsson ættu báðir að huga að pokanum sínum. Það virðist vera sama mjöl í báðum.