Vefumsjónarkerfiđ ecweb 3.6.70 www.ecweb.is ecweb vefumsjónarkerfi / ecweb CMS E.C.Hugbúnađur / E.C.Software Hallgrimur

NEWS

15. október 2007
The photographic exhibition "What I've always wanted to ask myself" by radio journalist Tobias Wenzel and photographer Carolin Seeliger was featured at this year's Frankfurt Book Fair. Over 70 international writers were asked to ask themselves a question and answer it. HH's contribution can be seen here and here
08. október 2007
On October 4th Stormland (Rokland) was published by Aschehoug in Denmark. Three reviews have already appeared. "Hallgrimur Helgason skriver röven ud af bukserne på al anden nordisk samtidslitteratur med romanen om den frustrerede idealist og kulutrpessimist Böddi. Læs ham!" says Berlingske Tidende, giving the book 6 stars. "Rasende, og rasende morsom" says Jyllandsposten and gives it 5 stars. The business minded Börsen also gives it 5 stars.

ART

PAINTINGS:
1983-1996

PAINTINGS:
1997-2003

2000 2001 2002
2003 2004 2005
2006 2007

Forsíða

04. mars 2008 | 13:36
Hitað upp fyrir ESB

Hálf Reykjavík var mætt til Brüssel á þriðjudagskvöldið. Hjaltalín lék fyrir skrafi á opnun íslensku menningarhátíðarinnar, Iceland on the Edge, í Bozar listamiðstöðinni, einhverju mesta húsbákni sem undirritaður hefur villst inn í, og gestir gleyptu í sig hangikjöts-tartare og hákarl au vin brulé. Þrjár íslenskar sýningar opnuðu sama kvöldið og tveir íslenskir ráðherrar voru mættir, annar þeirra í fylgd tveggja lífvarða frá Evrópusambandinu. Íslensk menningarinnrás í Brüssel var hafin, með pompi og pragt, myndlistar-, leik- og kvikmyndasýningum, tónleikum og upplestrum, og þrotlausri fjölmiðlaumfjöllun um Ísland og íslenska menningu. Tuttugu belgískir blaðamenn höfðu mætt á skerið síðastliðið haust og spurt mannskapinn úr spjörum.

Glæsilegt verkefni fór vel af stað. Allir sem veitingum gátu valdið voru mættir, með sitt “voila!” og “ca veut dire”, og ráku sín konunglegu nef upp í landans geð og sín þaulæfðu augu inn fyrir fossatjöld Rúríar, að ljósmyndum Spessa og Kela, og myndböndum Ragga Kjartans og Gjörningaklúbbsins. Málarameistarar vorir, Kjarval, Davíðsson og Guðni urðu því miður eilítið hornreka í þessu samhengi, hengdir upp á furðulegum og alltof litlum gangi lengst uppi á lofti.

Samkvæmt fréttum nýtti forsætisráðherra ferðina til funda með forkólfum Evrópusambandsins. Sú staðreynd styrkti grun sem listamenn höfðu leikið sér með í vélinni fyrr um daginn: Hvers vegna Brüssel? Jú, er ekki verið að hita upp fyrir aðildarumsókn að ESB?

Íslenski menningarherinn er sendur inn til að fitla við menn og kitla konur svo þau mæti hlæjandi mjúk að samningaborði þegar þar að kemur. “Þegar þar að kemur” virðist hinsvegar óþarflega langt undan. Þeir sjálfstæðismenn sem spurðir voru hæfilega kæruleysislegra spurninga á opnun svöruðu æstir sem einn að málið væri ekki á dagskrá. Ekki einu sinni á menningardagskrá. Annaðhvort stefnir því í íhaldsstjórn XD og VG á komandi árum, með allt í bakkgír og enn hærri vöxtum, eða Sjálfstæðisflokkurinn mun sætta sig við verðandi hlut og halda áfram innrásinni í Brüssel. Líklega benda krampakennd viðbrögð sjalla til þess að málið sé eldfimt í þeirra flokki, annaðhvort það eða formaðurinn hefur þegar ákveðið sig og enginn má segja frá því. Síðari möguleikinn er reyndar í anda hins hófstillta forsætisráðherra. Hans sigling er sígandi hæg og varkár en virðist þó alltaf skila málum í höfn. Það hvarflar að manni Geir hafi fyrir Íslands hönd þegar ákveðið að sækja um inngöngu í ESB, en bíði eftir því að umræðan heltaki flokkinn og málið verði sjálfsagt. Samkvæmt öllum teiknum virðist það ætla að verða fyrr en síðar.

Þá er bara spurning HVAR gengið er inn í ESB. Hin margslungna Brüssel lumar á mörgum hurðum og andyrum en ekki fundum við Halldór Guðmundsson innganginn í Evrópusambandið á rölti okkar um miðbæinn. Hann var enda truflaður nokkrum sinnum af blaðamönnum heima sem vildu vita allt um þá gleðifrétt sem braust út þennan dag þess efnis að Ísland verði fókusland á Bókamessunni í Frankfurt 2011. Að sögn diplómata hafa þýskir messumenn gengið á eftir okkur með grasið í skónum um árabil en það þurfti þýskumælandi handboltakonu með keppnisskap á ráðherrastól og ögn nútímalegri samstarfsflokk til að skilja mikilvægi málsins; að það er hægt að sækja fram völlinn með annað en bolta í hönd.

Til hamingju Ísland.

Annar kafli útrásar er því hafinn. Þeim fyrsta lauk með viðskiptamönnum inni á klósetti að skoða sjálfa sig í spegli. Minnisvarðar fyrsta kaflans standa þó enn. Þetta er skrifað á herbergi 810 á Hótel Íslandi í Riga. Yfir skrifborðinu hangir falleg ljósmynd af Mývatni. Yfir rúminu vakir Jökulsárlón. Á hæðinni fyrir ofan standa ráðstefnusalirnir Óðinn og Freyja og niðri í lobbýi sýna klukkurnar tímann hér og heima og út af Restaurant Reykjavík ómar Friðrik Ómar. Skrúfi maður frá baðkrananum blasir við blátt vatn, á la Blue Lagoon.

Út um gluggan blasir við borg sem stendur föstum fótum í ESB. Lettar eru um margt líkir Íslendingum. Lítil þjóð með stóra drauma og nýlendusögu á bakinu. Sauðsvartur almúgi í bland við bankamenn á Porsche jeppum. Er ekki gott að vera í EB? spyr ég mitt fólk. “Bæði og”, segir það. “En það verður bara gott þegar við fáum loksins evruna.”

 

 


BOOKS

Hella
Þetta er allt að koma
101 Reykjavík

Ljóðmæli
Skáldanótt
Höfundur Íslands

Rómeó og Júlía
Hr. Alheimur
Rokland

Best of Grim


The Kodak Moments




The Boston Papers