Vefumsjónarkerfiđ ecweb 3.6.70 www.ecweb.is ecweb vefumsjónarkerfi / ecweb CMS E.C.Hugbúnađur / E.C.Software
| 2000 | 2001 | 2002 |
| 2003 | 2004 | 2005 |
| 2006 | 2007 |
Ungur nam ég listasögu af vörum Björns Th. Kennt var á Kjarvalsstöðum, í herbergi í enda austurálmunnar, rými sem síðar var nýtt sem skrifstofa/kaffistofa starfsfólks. Engar venjulegar dyr voru á kennslustofunni. Því hlutverki gegndi ein risavaxin rennihurð sem jafnframt var suðurveggur stofunnar. Sá er mætti of seint í tíma þurfti því að renna honum öllum frá með tilheyrandi hljóði svo úr varð nokkuð kómísk sena.
Þetta voru fyrstu kynni mín af þessari einkennilegu byggingu sem tíminn hefur gert lítið til að lagfæra. Eftir því sem árin líða verður manni æ betur ljóst hvílíkur vandræðagripur Kjarvalsstaðir eru. Að umræddum listasöguvetri loknum hef ég tekið þátt í samsýningum í sölum hússins, sem og haldið þar einkasýningu, auk þess að hafa séð þar þúsund sýningar. Og það verður að segjast eins og er að salir Kjarvalsstaða henta ekki vel til myndlistarsýninga.
Fyrir utan hið fræga loft sem vofir yfir hverri sýningu eins og tískuhárgreiðsla frá 1965 eru rýmin of ílöng. Salirnir eru of langir og mjóir til að geta nokkurn tíma orðið dýnamískir. Þeir minna alltaf fremur á ganga en salarkynni. Menn hafa reynt allt til að fá þá til að virka, en ætíð án árangurs. Algengt er að fylla þá með skilrúmum svo úr verður sýningarpláss sem minnir helst á vörusýningar. Einnig hafa salirnir ósjaldan verið stúkaðir í þrennt svo úr verður einskonar lestaríbúð (railroad apartment) sem frægar eru í Bandaríkjunum fyrir þá eintóna tilveru sem þeim fylgir.
Salirnir á Kjarvalsstöðum eru því slæmir til sýningarhalds. Og verða aldrei góðir.
Byggingin sjálf er heldur ekki mikið fyrir augað, lágreist, steingrá og kuldaleg; ópússuð steypa í bland við ryðgaðar stálplötur á la Serra og þunglamalegur koparhjálmur yfir, sem lætur húsið minna á pott með of stóru loki. Þó má vissulega tala um stíl. Unnendur mannfælandi meinlætastefnu í arkitektúr hafa sjálfsagt dálæti á húsinu. Praktískt séð er það þó erfitt viðureignar. Auk hinna erfiðu sýningarsala eru gangrými og tengiálma óskiljanlega stór (slaga hátt í salina sjálfa) og nánast ónýtanleg. Veggvíðir gluggar mót suðri gera gangana á Kjarvalsstöðum óbærilega á sólardögum og niðurdrepandi á rigningardögum. Þá hefur aldrei tekist að nýta hellulagt torgið á milli álmanna. Að auki þjáist byggingin af þeirri tuttugusta aldar tilraun sem lét steinsteypuna standa ópússaða og ómálaða. Hugmyndin var kannski ágæt og virkar sæmilega á sumarbjörtum dögum, en í skammdeginu gera steingráir veggirnir lítið annað en bæta við hinn séríslenska drunga og víst er að ekki voru allir veggir jafn heppnir með steypu. Umfram allt er húsið þó hróplega ólíkt nafna sínum.
En hér á hann samt heima, Jóhannes Sveinsson Kjarval. Húsið var byggt yfir okkar mesta listamann. Og enn þann dag í dag eru Kjarvalsstaðir eina byggingin sem Íslendingar hafa reist í þeim tilgangi að sýna list. Hún ber því merki um stórhug á sinni tíð. En nú er önnur öld. Og Kjarval gerir fátt annað en að stækka.
Vandinn við Kjarvalsstaði hefur alltaf verið sá að enginn veit hvort þeir eru safn eða sýningarhús. Allt frá byggingu hafa þeir verið hvort tveggja. Samkvæmt þáverandi borgarstjóra, Geir Hallgrímssyni, skyldi húsið geyma það besta úr íslenskri myndlist þar sem verk Kjarvals yrðu einskonar “kjölfesta” (bls. 487 í nýju Kjarvalsbókinni). Semsagt ekki hreinræktað Kjarvalssafn. Kjarvalsstaðir hafa því alltaf gegnt tveimur ólíkum hlutverkum. Í fátækt fortíðar treystu menn sér ekki til að reisa Kjarval Museum heldur slógu tvær flugur í einu höggi. Meistarinn í eystri endanum og kollegar hans í þeim vestari.
Höfum við enn ekki efni á því að byggja yfir meistara Kjarval, manninn sem “gaf” okkur líf sitt, yfir 5000 verk sem manni finnst maður aldrei hafa séð, fyrir utan þessi þrjátíu sem hafa hangið í austursal Kjarvalsstaða síðastliðin 40 ár?
Á hann ekki meira skilið?
Og á Ísland ekki skilið að fá annað hús sérhannað til myndlistarsýninga?
Að sjálfsögðu. Við eigum að taka Kjarval út af Kjarvalsstöðum og reisa honum alvöru listasafn rétt eins og Norðmenn gerðu fyrir Munch og Hollendingar fyrir Van Gogh. Kjarval er okkar Edvard, okkar Vincent. Hann á skilið annað og meira en hanga eins og feiminn húsgestur í smærri helmingi hússins sem hann tók fyrstu skóflustunguna að.
Hvar eru allar teikningarnar? Hvar eru veggmyndirnar? Hvar allar skyssurnar? Blómamyndirnar? Mannamyndirnar? Ljósmyndirnar? Ljóðabækurnar? Litaspjöldin? Hattarnir? Og hvar öll hin 4000 málverkin? Við eigum að hafa sem mest af þessu uppi við, sýnilegt okkur og erlendum gestum, allan ársins hring. Og undir þetta þarf nýtt hús. Jafnvel þótt Kjarvalsstaðir yrðu allir lagðir undir meistarann frá Efri Ey myndu þeir ekki duga.
En hvað á þá að gera við Kjarvalsstaði? Það má til dæmis breyta þeim í leikhús. Frjálsu leikhópana vantar alltaf sali. Gera mætti sinn hvorn salinn að “svörtum kassa” í hæfilegri stærð fyrir lítinn leikhóp. Jafnvel mætti hugsa sér bíósal í austurálmu og leikhús í þeirri vestari. Og til að afmá alvöruþrunginn helgistíl hússins mætti leyfa þar bjarta liti, bari, búðir og almennan fíling með internet og DJ-ívafi; Gera þetta að lifandi félagsmiðstöð eða menningarhúsi, sem væri opið á kvöldin.
Bæta mætti Listasafni Reykjavíkur skaðann með því að reisa handa því “hvítan kassa” á Miklatúni.
Nýtt Kjarvalssafn gæti einnig risið á sama túni, nóg er víst plássið, en það mætti einnig byggja í Svínahrauni eða Vifilsstaðahrauni, hvar málarinn stóð ósjaldan úti með pensil og striga. Því ekki að reisa meistaranum hraunhöll í mosanum miðjum? Og því ekki að gera það veglega úr garði, með alþjóðlegum arkitektúr sem væri jafn brjálaður og hraunið sjálft og málari þess, þar sem meistaraverkin fengju að keppa við fyrirmyndir sínar; gluggafylli af hraunveruleika og fjallasýn? Því ekki að vera grand á því og fá einhvern af Gehry-skólanum til að teikna safn á alþjóðavísu sem gæti orðið ferðamannasegull í ætt við Guggenheim-safnið í Bilbao og Louisiana við Kaupmannahöfn? Einskonar Bláa lón listarinnar. Er þetta ekki kjörið verkefni fyrir Orkuveitu Reykjavíkur sem að líkindum er eini arftaki Kjarvals í virkjun Hellisheiðar og veit auk þess vart aura sinna tal?