Vefumsjónarkerfiđ ecweb 3.6.70 www.ecweb.is ecweb vefumsjónarkerfi / ecweb CMS E.C.Hugbúnađur / E.C.Software Hallgrimur

NEWS

12. júní 2007
HH was among the writers taking part in the Festival of the European Short Story  in Croatia 3-8 June 2007. Not being a known for short stories, HH however whipped one out especially for the festival that was organized by the great Roman Simic and included readings and discussions in Zagreb and Split, the great Adriatic seaport.
30. mars 2007
Hallgrimur has a new publisher in Denmark. He has left Rosinante and signed with Aschehoug. Rosinante published two of his novels, "101 Reykjavik" in 2000 and "Islands forfatter" in 2006. Aschehoug will start with "Stormland" in September 2007

ART

PAINTINGS:
1983-1996

PAINTINGS:
1997-2003

2000 2001 2002
2003 2004 2005
2006 2007

Forsíða

29. maí 2007 | 09:46
Lesandinn er slappur, bókin er veik en höfundurinn hress

I.

Skipta má rithöfundum í tvo meginflokka. Þá sem skrifa út frá eigin reynslu og þá sem gera það ekki. Flokkarnir tveir eru kannski ekki alveg vatnsheldir. Það lekur á milli þeirra. Segja má að skiptingin sé jafn hólfandi og skipting mannkyns í konur og karlmenn. Í báðum flokkum má finna karlmannlegar konur og kvenlega karlmenn og á milli þeirra stendur síðan fjölskrúðlegur hópur samkynhneigðra, tvíkynhneigða, klæð- og kynskiptinga.

 En gott og vel. 

Sumir rithöfundar eru alltaf að skrifa um sjálfan sig. Aðrir skrifa um örlög annarra, skapa persónur sem oft á tíðum eru gjörólíkar þeim sjálfum. Bestu dæmin um flokkana tvo eru auðvitað Þórbergur og Laxness. Þórbergur sá allt út frá sjálfum sér. Hann varð sjálfur að hafa upplifað söguna sem hann skrifaði. Laxness skrifar hinsvegar aldrei um sjálfan sig. Maður sem aldrei dýfði hendi í kalt vatn skrifaði meistaraverk um mesta stritmann Íslandssögunnar.

Af erlendum höfundum getum við til dæmis sett Peter Handke og Michel Houellebeque í fyrri flokkinn. Aðalpersónur þeirra eru nær alltaf miðaldra einmana karlmenn sem vita ekki alveg hvað þeir eiga að gera við lífið. Eftir því sem bókunum fjölgar renna þessar persónur alltaf betur og betur saman við höfunda sína: Miðaldra einmana rithöfundar sem vita ekki alveg um hvað þeir eiga að skrifa. Í seinni flokkinn getum við svo kannski sett stóra anda eins og Marquez og Morrison, höfundar sem skapa litríkar og nær goðsögulegar persónur sem oftast eru lítt skyldar þeim sjálfum. Á milli flokka falla síðan menn eins og Philip Roth. Ósjaldan notar hann sjálfan sig sem persónu og þótt hann skrifi um aðra karlmenn eru þeir nánast alltaf ættaðir af næsta bæ við höfundinn, oftast gyðingar og ýmist fæddir í New Jersey eða búsettir í Connecticut. Svo eru það höfundar eins og Martin Amis sem eru alltaf að rembast við að falla í flokk sjálfslausra höfunda en ættu kannski betur heima í flokki sjálfsmiðaðra.

Ég fer ekki í grafgötur með það að ég ber meiri virðingu fyrir þeim höfundum sem geta gleymt sjálfum sér og ímyndað sér líf annarra, skáldað upp heilar persónur og örlög þeirra. Hinir eru góðir fyrir sinn hatt en þeir eru ekki jafn stórir í sér.

Sem kunnugt er hefur bókmenntunum löngum verið skipt í þrjár höfuðgreinar: Sögu, leikrit og ljóð. Lýrík, epík og dramatík. Ljóðskáldin yrkja yfirleitt út frá eigin reynslu. Epískir rithöfundar segja línulega sögu annars fólks, einnar hetju eða heillar fjölskyldu. Dramatískur höfundur tekur slíka sögu og teflir henni fram gegn annarri sögu. Í mögnuðustu sviðsverkum bókmenntasögunnar er hver persóna líkt og heil skáldsaga eða söguljóð í sjálfri sér sem slæst við aðra sögu eða annað ljóð á sviðinu. Dramatíkin er því margbrotnara form en hin tvö og því réttilega kölluð drottning bókmenntaformanna. Það gefur auga leið að dramatíkin er ekki á færi höfunda sem skrifa einungis út frá sjálfum sér.

Ef við hugsum um fyrri flokkaskiptinguna, í sjálfsmiðaða og sjálfslausa höfunda, og leggjum hana saman við þrískiptingu formanna skiljum við kannski betur hvers vegna Shakespeare er talinn magnaðasti höfundur sögunnar. Hann var ekki einhamur höfundur heldur hundraðfaldur; undan ermum hans flaut fjölbreyttasta persónugallerí heimsbókmenntanna. Hann gat skrifað um kónga jafnt sem betlara, róna og ræningja, hermenn og hórur, hreinar meyjar og afdankaðar kerlingar, kaupmenn og kviðmága, dóna og drottningar. Og virðist á heimavelli í hverri einustu þessara persóna. Þegar Shakespeare skrifar upp í Ríkarð III er engu líkara en hann sjálfur hafi verið valdagráðugur krypplingur og miskunnarlaus mannkvalari. En þegar hann bregður sér í gervi Barnfóstrunnar í Rómeó og Júlíu er engu líkara en að hann hafi ekki gert annað en að stoppa í sokka allt sitt líf.

Þetta er snilldin í Shakespeare. Hin aukalega snilld hans fellst síðan í því að nánast ekkert er vitað um líf hans. Einmitt þess vegna hafa verið skrifaðar um hann um það bil eitt þúsund ævisögur. Því minna sem menn vita, því meira pláss fyrir spekúlasjónir. Shakespeare er enn að gera fræðimenn gráhærða. Þeir komast ekki yfir það að “ómenntaður sveitapiltur” hafi skilað slíku æviverki. Undirliggjandi hvatinn að öllum þessum ævisögum er spurningin: Hvernig í andskotanum fór hann að þessu?! Og svo leitast hver og einn við að svara því.

 Shakespeare er hinn fullkomni sjálfslausi höfundur. Hann er hinn fullkomlega “dauði” höfundur, í merkingu Roland Barthes. Verkin lifa góðu lífi án hjálpar höfundarins. Sama hvað menn reyna, þá tekst þeim aldrei að heimfæra skrif Shakespeare’s upp á ævi hans. Á hverju ári koma út tuttugu nýjar bækur um skáldið. Ein reynir að sýna fram á að ungur hafi hann verið í hernum sem á skýri innsæi hans í stríðs- og hermennsku. Önnur reynir að útskýra þekkingu hans á sálarlífi kvenna með því að hann hljóti að hafa verið tvíkynhneigður. Og þar fram eftir götum…

Kenning Roland Barthes um “dauða höfundarins” á því einkar vel við William Shakespeare. Þrátt fyrir þúsund ævisögur eiga menn enn í mestu brösum með að finna uppsprettu leikritanna stað í lífi skáldsins, enda er það auðvitað vonlaust verk. Við eigum frekar að leyfa okkur að njóta verkanna, textans og persónanna. Vandinn er hinsvegar sá að eftir að hafa gert það um stund vaknar aftur með okkur óslökkvandi þorsti til að vita eitthvað meira um þennan einstaka mann, manninn sem skapaði öll þessi líf. Og enn og aftur komum við að læstum dyrum. Skáldið samdi jafnvel sína eigin grafskrift; lét rita á legstein sinn háværa hótun um að hver sá sem reyndi að hrófla við gröf sinni myndi súpa hel.

Því getum við sagt: Shakespeare var ekkert, verk hans allt.

Með því að afneita eigin sjálfi gat hann búið til þúsund önnur. Með því að gera sig að engu varð hann allt. Og hér er þversögnin þar með komin: Samkvæmt kenningu Barthes er Shakespeare hinn fullkomlega “dauði” höfundur, en með því að vera það verður hann um leið hinn eilífi höfundur, það skáld sem lifir hraustlegasta lífinu eftir dauðann. 400 árum eftir andlát sitt er hann sprellifandi. Kenning Barthes hljómar því hér eins og hróp hirðmeistaran Buckinghamhallar við andlát drottningar eða konungs:

“Höfundurinn er dauður! Lengi lifi höfundurinn!”

Þar með er hin hliðin komin upp á krónu Barthes: Þegar skáldskapurinn er sviptur ævisögulegri túlkun er höfundurinn gerður að einhverskonar hálfguði, alskapandi séníi sem ekki þarf að hafa farið fram úr rúmi til að geta skrifað hinar ævintýralegustu frásagnir. Hér verður okkur aftur hugsað til Laxness sem bjó til Bjart í Sumarhúsum án þess að hafa sjálfur nokkru sinni tekið á móti lambi, mjólkað ær eða misst konu af barnsförum. Og okkur verður líka hugsað til Henry James sem lýsti rithöfundinum sem manni sem gengur framhjá hermannabragga að kvöldi til, heyrir eina setningu út um glugga, og fer síðan heim og skrifar 600 blaðsíðna skáldsögu um hermannalíf.

Ég held við getum öll fallist á það að þegar vel tekst til er textinn alltaf stærri en höfundurinn, atburðir og átök sögunnar alltaf stærri en hið litla og tilbreytingarsnauða líf hans. Hin sammannlega reynsla liggur í loftinu og séu menn næmir tekst þeim stundum að fanga hana á pappír. Menn þurfa ekki að hafa úthellt blóði til að geta það með bleki.

Mér sýnist því kenningin um dauða höfundarins ganga vel upp um þann flokk höfunda sem skrifa hvað minnst um sjálfan sig. En hvað um hina? Hvernig eigum við að geta lesið Ofvitann eða Íslenskan aðal án þess að hugsa um hinn sérkennilega höfund þeirra? Þórbergur Þórðarson verður líklega seint kallaður “dauður höfundur”, gleymdur og grafinn á bak við texta sinn. Hann fylgir okkur alltaf í gegnum bækurnar. Af þessum sökum hefur ekki tekist að koma þeim yfir á önnur tungumál. Útlendingar þekkja ekki manninn Þórberg Þórðarson og eiga því erfiðara að “ná” bókum hans. Af þessu og öðru leiðir að oft er hætt við því að sjálfsmiðaðir höfundar verði ekki jafn langlífir og þeir sjálfslausu. Þeir fyrrnefndu lifa ekki jafn lengi eftir dauða sinn. Þegar hinn “lifandi höfundur” deyr í alvöru deyr oft texti hans líka.

Því getum við súmmerað dæmið upp þannig að kenningin um dauða höfundarins á við um flokk sjálfslausra höfunda á þann hátt að “dauðir höfundar” lifa lengur og um flokk sjálfsmiðaðra höfunda á þann veg að “lifandi höfundar” deyja fyrr.

Lífið er fullt af mótsögnum. Skáldskapurinn þrífst á þeim.


II.

En hver er staða höfundarins í dag? Ég vil halda því fram að hún sé eiginlega of góð, of sterk. Við lifum á ÖLD HÖFUNDARINS. Höfundurinn er jafnvel fyrirferðarmeiri en verk hans. Hann er alltaf í forgrunni, verkin í bakgrunni. Gott dæmi, þótt úr öðrum geira sé, eru ljósmyndir sem fylgja viðtölum við myndlistarmenn í dagblöðum og tímaritum dagsins: Myndin sýnir alltaf andlit listamannsins, aldrei verk hans. Afurðir listamannsins eru aukaatriði. Andlit hans og ímynd eru númer eitt.

Sjálfsagt hafa aldrei verið gefnar út jafn margar bækur og nú um stundir, sjálfsagt hafa aldrei jafn margir höfundar setið við skriftir, sjálfsagt aldrei fleiri ritdómarar, aldrei fleiri útgefendur, og já, kannski aldrei fleiri lesendur. En jafnvel þótt lesendum hafi fjölgað á undanförnum árum mun þeim aldrei takast að lesa allt það sem út er gefið. Titlarnir á Amazon-vefnum skipta milljónum. Höfundar telja sig góða ef þeir komast inn á topp fimmtíu þúsund listann með bækur sínar.

Alltof margar bækur. Hvað gera menn þá? Búa til höfunda. Blása upp höfunda. Ég hef hvorki lesið Murakami, Lisu Marklund eða Roddy Doyle. Samt eru þessir höfundar vissar stærðir í lífi manns. Samt finnst mér ég þekkja þá, jafnvel verk þeirra. Ég hef lesið um þá, og um verk þeirra. Ég hef lesið viðtöl við þá. Ég hef séð þá sitja á spjallborði, jafnvel heyrt þá lesa upp. Allt nema lesið bækur þeirra.

Í hverri menningarborg heimsins eru haldnar árlegar bókmenntahátíðir. Fimmtíu höfundum frá fimmtíu löndum er boðið að lesa upp og sitja og spjalla, fá sér í glas og fara út að borða. Fólk mætir á upplestrana en fæstir hafa þó lesið bækurnar. Menn mæta til að sjá HÖFUNDINN, til að kynnast HÖFUNDINUM. Það er ekki mögulegt að mönnum hafi tekist að lesa alla fimmtíu höfundana áður en þeir mæta til hátíðar. Jafnvel ekki skipuleggjendum hátíðanna tekst það og skipta pallborðs-verkum niður á vini sína: Þessi og þessi spjallar við þennan og þennan og hver og einn þarf því bara að lesa hvern og einn.

Af þessum sökum talar fólk ekki um bókmenntir lengur, líkt og rætt er um kvikmyndir, vegna þess að enginn hefur lesið sömu bókina (nema þá ef væri Mýrina og Da Vinci Code). Öll bókmenntaurmæða kaffitímanna fer þannig fram að einhver segir frá höfundi sem hann er að lesa og hinn segir “nei, ég hef ekki lesið hann”, og beinir síðan máli sínu að höfundinum sem hann er að lesa en hinn hefur ekki lesið. Því verður aldrei nein umræða til, ekkert samtal, heldur verður kaffitíminn að einskonar málþingi þar sem hver og einn heldur stuttan fyrirlestur um sinn mann, sinn höfund.

Ofgnótt frítíma hefur skapað ofgnótt rithöfunda. Lægri prentkostnaður skilar sér í fáránlega mörgum titlum. Og tækniframfarir í samgöngumálum valda því að alltof margir höfundar eru á alltof miklum þvælingi um heiminn. Útkoman er bókmenntaheimur þar sem höfundurinn er númer eitt, spyrjandinn númer tvö, áheyrandinn númer þrjú, útgefandinn númer fjögur, markaðsstjórinn númer fimm, ljósmyndarinn númer sex, gagnrýnandinn númer sjö, bóksalinn númer átta, lesandinn númer níu og bókin númer tíu.

Höfundurinn er númer eitt. Ég verð ekki var við að fólk beinlínis liggi í bókum Laxness þessa dagana. Hinsvegar eru allir nýbúnir að lesa ævisögurnar. Og hvað ætli margir hafi sofnað út frá Fjallkirkjunni í gærkvöldi? Hinsvegar lásum við öll um samskipti höfundarins við nasistastjórnina í blaðinu í morgun. Höfundurinn er númer eitt. Eina verulega skapandi umræðan sem fram hefur farið um Íslendingasögurnar síðari árin snýst um að finna út hverjir skrifuðu þær. Nú á Snorri Sturluson að hafa skrifað aðra hverja sögu. Samt eru það allt tómar getgátur. Eða síðan hvenær hafa valdasjúkir auðmenn samið skáldverk? En nei, við viljum endilega finna HÖFUNDINN með stóru H-i og helst einhvern sem líka var frægur HÖFÐINGI. Í raun þolum við ekki þá staðreynd að Íslendingasögurnar skuli ómerktar riturum sínum. Samtíminn stendur fyrir framan bókaskápinn í Þjóðarbókhlöðunni og beinlínis öskrar á leðurinnbundinn þjóðararfinn: “AFHVERJU Í ANDSKOTANUM GÁTUÐ ÞIÐ EKKI SETT NÖFNIN YKKAR Á TITILSÍÐURNAR!”

Mín tilfinning er sú að fólk lesi mun minna en það segist gera. Fólk lýgur að sjálfu sér og öðrum í hverri lestrarkönnuninni á fætur annarri. Í hugum fólks er lestur ein helsta dyggð samtímans (uppi á efstu hillu í dyggðakapellunni ásamt hálendisferðum og líkamsrækt) og með auknum lestrar-áróðri á síðustu árum hefur samviskubit þjóðarinnar gagnvart bókaskápum sínum ekki gert annað en aukast. Bókamarkaðurinn þrífst síðan á þessu samviskubiti: Fólk kaupir sér frið frá ólestrinum með því að kaupa bækur. “Nei ég er nú ekki búinn að lesa hana, en ég á hana uppi í hillu.” “Nei, ég hef nú aldrei lesið hann, en ég keypti einu sinni bók eftir hann og gaf mömmu. Hún strýkur stundum af henni.” Goðsögnin um þrjá lesendur á bak við hvert selt eintak er líklega bara flökkusaga. Mín tilfinning er sú að önnur hver bók sem versluð er í búðinni endi ólesin í dánarbúinu.

Samt er dásamlegt að vera höfundur á Íslandi í dag. Þótt sífellt færri lesi bækur af einhverri alvöru fær maður fína athygli. Í hvert sinn sem ný bók kemur út fer maður viðtalahringinn í fjölmiðlum. Að vísu hefur enginn af blaðamönnunum lesið nýju bókina (þeir taka það alltaf fram í byrjun viðtals) en í staðinn spyrja þeir bara hvernig var á teppinu hjá Davíð, hvernig sé að eiga barn, og hvort maður sé alveg hættur að mála. Svo kemur ljósmyndarinn og maður setur upp brosið.

Íslenska bókaþjóðin er líklega ofmetið hugtak. Í Þýskalandi hefur hver og einn einasti blaða-, útvarps-, sjónvarpsmaður sem spjallar við mann lesið nýju bókina og kann hana nánast utan að. Og í hverri borg er sérstakt bókmenntahús sem býður upp á upplestra fjögur kvöld í viku, einn höfund í senn. Fólk borgar sig meira að segja inn og hlustar á sömu bókina í heilar fjörutíu mínútur. Í Frakklandi er fjallað um nýjar skáldsögur í fréttatímum. Þar er skáldskapur talinn til tíðinda. Í New York sá ég 1500 manns fylla bókabúð á Union Square og bíða þar í klukkutíma til að hlýða á Chuck Palahniuk. Og í Noregi opnar haustvertíðin með stóru sirkustjaldi á Karl Johan. Bókatjaldi. Á hverjum degi fyllist það af fólki sem vill fá að heyra lesið upp úr nýjum bókum og heyra í nýjum höfundum. Þar í landi er líka haldið úti heilum tveimur vikulegum sjónvarpsþáttum um bókmenntir. Hér fær hver bók þrjár mínútur af hálfu Ríkissjónvarpsins. Þrjár mínútur max. Þriggja mínútna umjöllun um verk sem var kannski þrjú ár í smíðum. Hinsvegar fá allra frægustu höfundarnir hálftíma viðtal um sig og sína persónu þar sem helst er ekki minnst á nýju bókina enda viðmælandinn ekki búinn að lesa hana. Allar þjóðir halda úti sjónvarpsþáttum um bókmenntir. Allar nema “bókaþjóðin”.

Hún vill helst ekki tala um bækur, bara við höfunda.

Ég hef sjálfur tvisvar reynt að ráða bót á þessu. Fyrir fáum árum talaði ég við einn af RÚV-toppunum og lagði fram það sem mér fannst vera góð hugmynd: Vikulegir þættir um Íslendingasögurnar þar sem ein saga væri tekin fyrir í hverjum þætti. Farið yfir efni hennar, sögustaðir sýndir, fræðimenn spurðir og síðan væri boðið upp á umræður þriggja lesenda í lokin; þrjár ólíkar sýnir á söguna. RÚVarinn horfði í gegnum mig á meðan ég reifaði hugmyndina. Í fyrrahaust tókst mér síðan að koma nýjum þætti inn í prógrammið hjá NFS. Þátturinn átti að fjalla um bókmenntir almennt og búið var að ganga frá heiti hans og finna stjórnanda þegar stöðin lét skyndilega af útsendingum. Vonandi verður einhvertímann til íslenskur sjónvarpsþáttur tileinkaður bókmenntum. Af nógu er að taka.

III.

Staðan í bókmenntaheimi okkar þessi: Lesandinn er of slappur. Hann kemst ekki í gegnum texta lengri en 200 blaðsíður og á sífellt erfiðara með að átta sig á bókum sem ekki byrja á morði.
Staða bókarinnar er of veik. Framboðið er svo mikið að titlarnir draga hvorn annan niður. Þúsund manns í sjónum berjast um björgunarbát sem tekur sex.

Höfundurinn er hinsvegar akhress. Alltof hress. Enda er honum boðið út að borða í kvöld. Af útgefendum og blaðamönnum. Enginn þeirra hefur reyndar lesið nýju bókina hans en þeir geta ekki beðið eftir því að hitta hann, HÖFUNDINN. Það verður gaman að sjá hvað hann pantar sér í forrétt og hvort hann tekur hvítvín eða rauðvín með aðalréttinum. Vonum bara að hann verði ekki of andfúll, eins og þessi sem kom um daginn.

Er andinn yfir okkur eða út úr okkur?


BOOKS

Hella
Þetta er allt að koma
101 Reykjavík

Ljóðmæli
Skáldanótt
Höfundur Íslands

Rómeó og Júlía
Hr. Alheimur
Rokland

Best of Grim


The Kodak Moments




The Boston Papers