Hallgrímur Pétursson fæddist árið 1614 í Gröf á Höfðaströnd. Í ár er þess minnst að fjórar aldir eru liðnar frá fæðingu hans. Hann hefur líklega án þess að á nokkurn sé hallað haft hvað mest áhrif allra Íslendinga á trúarupplifun þjóðarinnar, ekki síst í gegnum Passíusálmana sem eru þjóðargersemi.
Hallgrímur ólst upp á Hólum í Hjaltadal. Hann var vígður til prestsþjónustu á Hvalsnesi árið 1644 og bjó þar ásamt fjölskyldu sinni til 1651. Það ár fluttist Hallgrímur ásamt fjölskyldu sinni í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Þar orti Hallgrímur Passíusálmana og fjöld annarra sálma sem hafa lifað með íslensku þjóðinni.
Passíusálmarnir eru þekktustu verk Hallgríms.
Afmælisárið
Á afmælisárinu verður ýmislegt gert til að minna á Hallgrím og minnast hans.
Mars
5. mars. Hallgrímskirkja. Hallgrímur horfir á altaristöflu Hóladómkirkju. Föstukvöld í Hallgrímskirkju. Af barnæsku Hallgríms Péturssonar í Gröf og Hólum í Hjaltadal. Fyrirlesari: Steinunn Jóhannesdóttir. Mótettukór Hallgrímskirkju flytur kórtónlist tengda uppvexti Hallgríms. Umsjón: Sr. Birgir Ásgeirsson
12. mars. Hallgrímskirkja. Barokktíminn og Hólar. Fyrirlesari: Dr. Margrét Eggertsdóttir. Schola cantorum flytur tónlist við sálma Hallgríms. Umsjón: Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
19. mars. Hallgrímskirkja. Hallgrímur Pétursson púlsmaður og prestur í Hvalsnesi. Fyrirlesari: sr. Karl Sigurbjörnsson biskup. Erna Blöndal sópransöngkona og Gunnar Gunnarsson organisti flytja tónlist við sálma Hallgríms. Umsjón: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
26. mars. Hallgrímskirkja. Brynjólfur biskup í Skálholti og Hallgrímur Pétursson. Fyrirlesari: Helgi Skúli Kjartansson. Söngkvartett úr Schola cantorum flytur valin vers úr Passíusálmunum. Umsjón: Sr. Birgir Ásgeirsson.
28.-30. mars. Hólar. Sr. Hallgrímur og Hólar í 400 ár. Málþing á Hólum í Hjaltadal 28.-30. mars: Hallgrímur, Hólar og nýjar rannsóknir á handrita- og prentmenningu. Guðbrandsstofnun í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Umsjón: Dr. Margrét Eggertsdóttir o.fl.
Apríl
2. apríl. Hallgrímskirkja. Hallgrímur Pétursson í Saurbæ og passíusálmarnir. Fyrirlesari: Dr. theol. Einar Sigurbjörnsson. Einsöngvarar í Schola cantorum syngja sálma úr íslenskum handritum. Umsjón: Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
9. apríl. Hallgrímskirkja, arfleifð til framtíðar. Fyrirlesari: Dr. Sigurður Pálsson. Sálmforleikir við lagboða Passíusálmanna. Björn Steinar Sólbergsson organisti leikur á orgel kirkjunnar. Umsjón: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
16. apríl. Hallgrímskirkja. Passíusálmarnir á erlendum tungum. Dr. Margrét Eggertsdóttir ræðir stuttlega um þýðingar á Passíusálmunum. Fyrirlesari kvöldsins: Johan Klein sem þýtt hefur Passíusálmana á hollensku. Tónlist í umsjá Björns Steinars Sólbergssonar organista. Umsjón: Sr. Birgir Ásgeirsson
18. apríl. Föstudagurinn langi. Hallgrímskirkja. Lestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar kl. 13.00 – 18.30. Lesarar: Gísli Sigurðsson, Guðmundur Andri Thorsson, Guðrún Nordal, Margrét Eggertsdóttir, Rósa Þorsteinsdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir, Þorleifur Hauksson, Þorsteinn Helgason, Þórunn Sigurðardóttir og Einar Sigurbjörnsson.
18. apríl. Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Fjórar konur lesa Passíusálmana. Umsjón: Steinunn Jóhannesdóttir.
21. apríl. Hallgrímskirkja. Páskaóratóría Hallgríms eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson verður frumflutt annan í páskum 21. apríl kl. 20.00. Schola cantorum syngur undir stjórn Hreiðars Inga. Tónleikar á vegum Listvinafélagsins, sunnudaginn 9. mars kl. 17.00. Mótettukórinn flytur verk eftir samtímamenn Hallgríms, Heinrich Schütz, dönsku tónskáldin Mogens Pedersøn og Thomas Schattenberg, auk verka eftir íslensk tónskáld við texta Hallgríms.
Júlí
19.-20. júlí. Skálholtshátíð. Á hátíðinni verður minning Hallgríms á dagskrá.
27. júlí. Hallgrímskirkja í Saurbæ. Hátíðarmessa.
Ágúst
9.-14. ágúst. Hólahátíð. Steinunn Jóhannesdóttir les bók sína Heimanfylgju á sögustöðunum Gröf á Höfðaströnd og á Hólum í Hjaltadal í aðdraganda Hólahátíðar. Hólahátíð verður helguð uppvexti Hallgríms í Skagafirði.
September
Landbókasafn Íslands - Háskólabókasafn opnar sýningu tengda verkum Hallgríms í Þjóðarbókhlöðu í september.
Október
25.–27. október Hallgrímskirkja. Hallgrímshátíð. Laugardagur 25. október. Opnun myndlistarsýningar. Sigtryggur Bjarni Baldvinsson. Tónleikar á vegum Listvinafélagsins. Hátíðarmessa verður sunnudaginn 26. október kl. 11.00 og Hallgrímsmessa á mánudagskvöldið 27. október kl. 20.00.
Ráðstefna um Hallgrím og erlend samtímaskáld hans verður haldin í Þjóðar- bókhlöðu 27. október. Umsjón: Landsbókasafn, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Listvinafélag Hallgrímskirkju.
Minnisvarði um Hallgrím Pétursson eftir Pál Guðmundsson á Húsafelli verður afhjúpaður í Hvalsnesi á árinu.
Viltu lesa meira eftir Hallgrím og um hann?
- Passíusálmarnir
- Passíusálmavefur Rúv
